Cabins

Skálar Ferðafélags Íslands og deilda FÍ eru 41 víðs vegar um landið. Allir geta notað skálana, og félagsmenn njóta afsláttarkjara og forgangs. Yfir sumartímann eru skálaverðir í stærri skálum en á veturnar eru skálarnir læstir en hægt er að panta gistingu og fá lykla fyrir flesta skálana á skrifstofu FÍ.

Í stærstu skálunum er bæði rennandi vatn og vatnsklósett og hægt er að panta tjaldstæði hér á vefnum.   Tjaldgestir þurfa að koma með eigin prímus og eldunaráhöld því þeir hafa ekki aðgang að eldunaraðstöðu skálanna. Sjá verðlista fyrir skála- og tjaldgistingu.

Daggestir þurfa að greiða aðstöðugjald þegar þeir dvelja á skálasvæðunum part úr degi og nýta sér aðstöðuna, svo sem nestisaðstöðu, grill og salerni.

Gott er að kynna sér aðgengi að skálunum hjá Vegagerðinni: vegagerdin.is, sími: 1777

Landsvæði

Showing all 2 results

en_USEnglish